|
Fallegu Prinsessurnar mínar :)
|
06.04.2007 17:43:01 / sigga
Þið verðið að fara að kíkja á nýju síðuna
mína,
þetta gengur ekki lengur,
það koma fleiri inn á þessa síðu heldur en á hina
og er ég þó búin að auglýsa hana vel 
Kíkið á þessa síðu :
http://siggavigga.bloggar.is
Kveðja Sigga Vigga og bumbubúinn

Ŵ̉瑳潲杮
»
07.02.2007 22:48:51 / sigga
Þið getið haldið áfram að fylgjar með mér á þessari síðu :
http://siggavigga.bloggar.is
Það er komið nýtt blogg og ekkert erfitt að kvitta 
Endilega kíkjið þið við hjá mér og kvittið 
Kveðja....
Feita Dúfan
»
04.02.2007 04:51:45 / sigga
Jæja loksins kemur ný færsla 
Það er margt og mikið búið að ske á stuttum tíma 
Ég er byrjuð í Háskólanum og ELSKA það.. bekkjarfélar mínir eru
æði. Þeir eru til í að skilja dönskuna mína og hrósa mér fyrir það
að vera til í að reyna að tala dönsku sem að mér finnst bara
frábært..auðvitað Það er svo gaman í skólanum og bekkurinn nær
svo vel saman, samt erum við frá 18 ára og upp í rúmlega 40 ára, og
mér sýnist það bara gefa bekknum breidd 
Ég var beðin um að koma að vinna á fredagsbarnum því að ég skil
bæði íslendingana og danina Sem að er auðvitað kostur 
En nóg af mér.. Birgitta er byrjuð að æfa sund, þar sem að það
er ekki kennt skólasund hér í skólanum Og við vildum að
hún lærði að synda, alger nauðsyn !!!
Hún er einnig svo innilega dugleg við að læra að reikna, að ég
verð að takmarka tímann sem að hún eyðir í reikning á hverju kvöldi
sem að er bara gott mál 
Og stóra fréttir... Guðbjörg María er byrjuð að pissa í klósett
Jamm bara mjög dugleg litla daman 
En annars þá er ég komin með aðra síðu
siggavigga.bloggar.is því að ég frétti að sumir hefðu reynt
að kommenta allt að 23 sinnum á þessari síðu án þess að ná í gegn
svo ég er að skipta 
Ég er ekki byrjuð að blogga þar en ég er búin að færa allt gamal
bloggið mitt þangað.
Það er bara svo mikið að gera hjá mér þessa dagana, en ég mun
pottþétt láta ykkur vita þegar ég næ að næla mér í smá tíma til að
blogga..núna er klukkan 05.56 að nóttu og Ívar steinsofnaður og ég
ætla að skella mér í háttinn og slútta djamminu núna... já ég er
PÍNU hífuð hahahaha en svona er þetta 
Kærlig hilsen frá danabúanum..
Feitu dúfunni
( sem að hélt með íslandi og fékk að finna fyrir því þegar hún
kom í skólann )
»
13.01.2007 02:10:14 / sigga
»
11.01.2007 16:37:00 / sigga
Vá það er æðislegt að sofa í sínu eigin rúmi 
Já það er skrítið að segja ég er komin heim..og vera að tala um
danmörk En svona er það nú víst...við erum bara orðin svona
dönsk í okkur 
Það var samt alveg æðislegt að koma heim en það verður að
segjast að heill mánuður inni á öðrum er bara einfaldlega of
erfiður, og manni er farið að langa mikið heim undir lokin.
Það var mikið brallað á þessum mánuði..ég fór á frábært vinkonu
djamm á kaffi Duus í keflavík, Jenný, Fanney, Dóra, Elín,
Rakel...takk alveg æðislega fyrir kvöldið það var svo gaman og svo
rákumst við á Gunnlaugu líka þetta kvöld svo að það var mjög gaman

Ég náði einnig að kíkja upp á Akranes til Örnu vinkonu og
fjölskyldu hennar á annann í jólum...Emilía litla prinsessa átti 2
ára afmæli og það var svaka fjör Þvílíkir grallarar sem
að börnin okkar breytast í þegar þau hittast 
Einnig náði ég að kíkja á Ernu vinkonu sem að býr fyrir utan
Selfoss, þegar við vorum uppi í bústað. Hún á strák sem að heitir
Árni og er jafn gamall Birgittu ( bara 4 dagar á milli þeirra )
hann er víst heldur feyminn svona yfirleitt, en auðvitað tókst
mínum dömum að ná honum svo hratt út úr skelinni að fyrr en varði
var orðið MIKIÐ fjör og ofsalega gaman...við náum að hittast svo
ofboðslega sjaldan en við verðum aðreyna að bæta úr því 
Það er svo skrítið að þó að ég nái sjaldan að hitta vini mína og
vinkonur, þá er eins og við höfum hist síðast í gær þegar við náum
að hittast aftur..ég segi að þegar það er svoleiðis þá á maður
sanna vini, því að þó að það líði 3 ár þá er það eins og einn
dagur ef að maður á sanna vini SAKNA YKKAR ALLRA SAMT,
ÞEGAR ÞIÐ ERUÐ EKKI NÁLÆGT
Því miður náði ég ekki að heimsækja alla sem að mig langaði til
að heimsækja, og til þeirra sem að ég var búin að segjast ætla að
reyna að kíkja við hjá...fyrigefið þið mér en það er bara eins og
tíminn renni bara frá manni 
Það var einnig mikið um útköll...ég og Ívar vorum auðvitað mjög
ánægð með að getað hjálpað. Ég komst að því að það var smá þörf
fyrir mig í svæðisstjórninni og það var eins og ég hefði aldrei
flutt út Það er alltaf gaman að getað hjálpað, en ég verð að
viðurkenna að þegar maður hugsar út í þetta frá sjónarhorni þeirra
sem að hafa aldrei verðið í björgunarsveit eða í kring um þær þá
skil ég að það sé horft á okkur eins og einhverja vitleysinga fyrir
það að vilja fara út í aftaka veðri til að festa niður þakplötur og
báta, leita að fólki oftast í brjáluðu veðri eða eins og þarna úti
á Hvalsnesi..að leita í sjó, sem að ég verða að segja að er ekki
auðvelt í vondu veðri.. en ég gæti bara ekki setið heima og horft
á...vá ég myndi pottþétt bilast við það, en ég er líka alin upp í
björgunarsveit og þar er fólkið sem að mér þykir svo vænt um, enda
bara gott fólk og skemmtilegt í þessu starfi. Þetta og kórinn er
eiginlega það eina sem að ég sakna frá íslandi...fyrir utan fólkið
auðvitað 
En mikið er nú samt gott að komast aftur inn í smá
skipulag...stelpurnar eru svo sáttar, Birgittu var fagnað
af vinkonum sínum þegar hún kom í skólann og datt strax inn í
skóladaginn eins og ekkert væri. Og það var tekið vel á móti
Guðbjörgu og svo heyrðist bara úr öllum hornum á
deildinni...Guðbjörg er komin og svo var mikið fagnað...og það
fyrsta sem að litla skottan gerði var að hlaupa í fangið á honum
Søren sem að vinnur á deildinni hennar og knúsa hann alveg
svakalega litla skottan var víst að knúsa allt starfsfólkið
þennann dag frétti ég þegar ég sótti hana, haha góð á því..vinna
sér inn smá punkta þá kemst maður upp með svo margt ekki
satt??
Ívar hefur lítið sést hér heima nema seint á kvöldin, hann er
nefnilega að klára að setja saman lokaverkefnið sem að er líka próf
Hann er svolítið stressaður, en ég hef fulla trú á honum. Það er
bara svolítið erfitt að vera að taka munnlegt próf á tungumáli
sem að manni finnst maður ekki vera það sleipur í. En danskan
er öll að koma til hjá okkur og ég er alveg viss um að hann stendur
sig vel eins og alltaf þessi elska 
Jæja ég byrja í skólanum þann 30 jan og ég verð að segja eins og
er að ég er svolítið stressuð, þetta nám er ekki auðvelt skilst
mér, stíft prógramm í eitt og hálft ár..úff!!
En að öðru ég er byrjuð aftur í DDV og er bara þokkalega dugleg
að fara eftir prógramminu. Minn galli er sá að mér finnst alveg
ógurlega leiðinlegt að borða og nenni helst ekki að gera það...en
það bitnar auðvitað á manni seinnipartinn því að þá byrjar maður að
narta eins og vitleysingur. En í þessu þá á maður að borða ákveðið
mikið í hverja máltíð og hér í Odense fékk ég allavega bara
prógramm sem að er búið að setja upp fyrir mig, meira að segja með
innkaupalista og öllu...svo núna er það bara harkan á þetta
"viss mí gúd lukk, æ nít it" 
Jæja bara komin með skrifkrampa og þarf að fara að finna til
kvöldmatinn fyrir mig og stelpurnar.."Chili con carne" ala
DDV...það vantar ekki að það er ofboðslega góður matur í þessum
lífstíl og ég hef séð svo marga "tapa sér" í þessu prógrammi og ég
er svo stolt af þessu fólki...já þið vitið hver þið eruð 
Jæja aftur og bless í þetta sinn 
Hilsen frá Odense....
Feita Dúfan 
»
28.12.2006 21:41:16 / sigga
Jæja þá erum við komin á klakann og jólin búin. Ég stóðst allt
jólastress þessi jól og bakaði ekkert og sendi engin kort þessi
jól, það getur verið að ég sendi eitthvað á næstu dögum ef ég nenni
Reyndar þá finnst mér pínulítið eins og jólin hafi bara ekki komið
þetta árið!! Ekkert stress og bara afslöppun og gaman. Reyndar var
mikill þvælingur á okkur á milli fjölskyldna og verð ég að segja
eins og er að ég væri alveg til í að prufa að vera bara á einum
stað á aðfangadag  og minnka þar með enn meira stressið  Ég
hlít að læra þetta næstu jól
Það er búið að vera gaman að koma heim á klakann en ég verð að
viðurkenna að mig er farið að langa svolítið heim til danmerkur!!
Já rúmið mitt lokkar alveg gífulega mikið
Jæja hef þetta bara stutt í bili og óska ykkur öllum Gleðilegra
Jóla og farsældar á komandi ári, þakka kærlega allar heimsóknirnar
á árinu sem er að líða.
Svo byrja ég í skólanum 30 janúar og þá læt ég ykkur nú vita
hvernig gengur með það. En eins og er þá er ég ekki í netsambandi (
vantar netið heima hjá tengdó  ) og ég er komin í mikið
fráhvarf...svo þið sem að eruð vön að fá kveðju frá mér svona öðru
hverju..ekki örvænta ég er ekki hætt, bara sambandslaus
Jólakveðja og knús.....
Feita Dúfan
»
07.12.2006 20:04:54 / sigga
»
03.12.2006 02:43:34 / sigga
Get ekki beðið eftir því að koma til Íslands og hitta vini og
ættingja
Kíktum í dag í heimsókn til Halla, Svönsu, Rakelar Köru og
bumbubúans
Það var æðislega gaman eins og alltaf þegar við hittumst.
Vá hvað tíminn líður svakalega hratt þegar við sitjum og spjöllum.
Fengum okkur eplaskífur, jólaglögg og höfum það bara "hyggeligt" á
danska vísu.
Við munum svo hitta þau aftur á morgun og kíkjum við þá á
jólaleikritið í Rosengaardcenter og hittum jólasveininn í Daglig
Brugsen.
Held að það verði bara gaman fyrir litlu prinsessurnar
Ég er að fá smá áfall, er að gera mér grein fyrir því að ég er að
fara í 4 próf í desember.
Úff mig hlakkar ekkert til.
Ívari gengur orðið mikið betur með dönskuna og fær hrós í skólanum
fyrir það
Prinsessurnar eru alltaf við sama heygarðs-hornið svo að þar er
ekkert nýtt að frétta.
Fékk fyrsta jólakortið í dag  Mikið þykir mér gaman að
því...Guðrún frænka takk fyrir kortið og ég kíki pottþétt í
heimsókn
Jæja verð að fara að sofa svo að ég komist á leikrit á morgun
!!
Kveðja og mig hlakkar svakalega til að hitta ykkur öll....
Feita Dúfan
»
28.11.2006 14:44:05 / sigga
Jæja það er mjög líklega eitthvað kvikindi skríðandi inni í
veggjunum á milli húsanna!! Ívar er í Bilka að kaupa gildrur svona
bara til öryggis til að hafa uppi á háalofti 
Að öður en skríðandi kvikindum !!
Ég er hætt við að fara með Norrænu heim og fer þess í stað með
flugi, sem að er náttúrulega svakalegur tímasparnaður
Kem sem sagt heim þann 9 des til Keflavíkur, en ef að ég hefði
farið með skipinu þá hefði ég komið heim þann 12 des svo þarna fékk
ég nokkra daga sem að ég get vel notað
Enda eins og færðin er búin að vera fyrir austan þá hlakkaði mig
ekkert til þess að keyra suður. Það var nú ekkert gaman að keyra í
9 klukkutíma alein í bíl, í rigningu og leiðindum síðasta sumar
þegar ég fór með bílinn út, svo að mig hlakkaði ekkert til að keyra
heim á smábíl, í snjó og leiðinda veðri með tvær óþolinmóðar
stelpur í bílnum Og það er pottþétt að þetta hefði tekið meira
en bara 9 klukkutíma sérstaklega þegar ég fengi að heyra á
hálftíma fresti...ég þarf að pissa, ég er svöng, hvenær komum við
til afa og ömmu..... Já þið getið ímyndað ykkur hvernig það væri
haha
Ívar er á fullu í skólanum að gera sig klárann fyrir
lokaverkefnið sem að þau fá í hendurnar þann 1 des. Svo núna sé ég
minna og minna af manninum mínum !! Og í desember á ég eflaust ekki
eftir að sjá mikið af honum Hann hefur alltaf verið komin heim í
síðasta lagi 4 á daginn , flesta daga er hann nú samt komin fyrr
heim !! Svona er maður orðin góðu vanur 
Birgittu gengur vel í skólanum eins og alltaf, enda bráðskýr
stelpa þar á ferð Vinafólk okkar heyrði hana tala dönsku um
daginn og það eina sem að þau gátu sagt var.. "það mætti halda að
þið hefðuð búið hér í nokkur ár en ekki nokkra mánuði", því að
danskan velltur svoleiðis upp úr henni, með hreim, hraða og öllu!!
Duglega stelpan mín Svo erum við foreldrarnir í bekknum sammála
um að þessi bekkur sé mjög góður, það virðast allir geta leikið sér
saman og enginn er útundan, sem að er auðvitað mjög góð byrjun og
við verðum bara að vona að þetta haldist svoleiðis 
Guðbjörg er búin að taka miklum framförum núna síðustu 2 vikur.
Hún er farin að segja setningar á dönsku og skilur mjög mikið. Hún
er einnig farin að tala íslenskuna skýrar, svo núna ætti að vera
auðveldara að skilja hana Hún fær svo mikið hrós frá fóstrunum á
leikskólanum þessa dagana að við erum í skýjunum, stoltir foreldrar

Og af mér að frétta er það að ég fann kór, og þau vilja endilega
fá mig til að syngja með sér, mér skilst að það sé skortur á háa
sópran Þetta er ekki kirkjukór en æfir samt í kirkjunni Mig
hlakkar mikið til að kynnast fleiri dönum. Svo fann ég einnig
tónlistaskóla sem að passar fyrir mig, en það eina er að ég kann
ekki ítölsku og þýsku !! Svo að það verður að bíða í bili.
En ég er á fullu í því að sækja um skóla núna, svo verður bara
að koma í ljós hvernig það gengur.
Jæja verð að segja að ég er með jólastemminguna á fullu, já ég
stóðst ekki mátið og er búin að skreyta smá hér heima Jólalögin
óma og malt og appelsín drukkið reglulega til að fá smá íslenskann
fíling á
heimilið.
Jamm við erum að drekka DANSKT malt og appelsín sem að bragðast
alveg eins og það
íslenska.
Halli og Svansa vinafólk okkar föttuðu að það er til malt hér í
danmörk, yfirleitt er það kallað jólaöl eða hvítöl, en svo fór ég
út í búð og þar fann ég "CERES Malt Øl" og það er eins líkt
íslenska maltinu og hægt er og svo blöndum við þessu út í "JOLLY
ORANGE" appelsín sem að blandast svo saman svona líka vel
Svo að fyrir þá íslendinga sem að eru búsettir í Dk og hafa ekki
fundið þetta fyrr Gjörið þið svo vel, íslensk jólastemming á
silfur-fati
Já hvað gerir maður ekki þegar maður saknar einhvers að heiman
haha
Jæja nenni ekki meiru í bili.
Endilega verið dugleg við að kvitta það er búið að vera sorglega
lítið af því undanfarið 
Hilsen og knús frá Feitu Dúfunni 
»
21.11.2006 02:18:38 / sigga
Jæja þá eru pabbi, mamma og Jón afi farin heim og allt orðið mjög
svo tómlegt hér á heimilinu!!
Það var nú samt mjög gaman hjá okkur  Við skelltum okkur til
Þýskalands einn daginn og röltum um Flensburg, sem að er komin í
jólafötin  Við gerðum einnig fleira en ég nenni ekki að telja
það allt upp núna, kemur kannski seinna
Já eins og fyrirsögnin segir þá er ég búin að kaupa nánast allar
jólagjafirnar, á bara eftir gjöfina fyrir Ívar og þá er ég klár 
Góð á því... hef aldrei verið búin svona snemma!!
Svo núna er bara að hefja undirbúning fyrir ferðina heim, og þá er
ég klár
Er meira að segja búin að hafa samband við gömlu kórfélagana mína
og láta vita að ég kem og góla með þeim um jólin...ég verð að fá
útrás einhvernveginn...var fyrst að sjá það að það sé kór hér í
hverfinu í dag!! og hef ég leitað mikið. Það er nefnilega þannig
hér í DK að ef að ég ætla að halda áfram í mínu söngnámi þá er bara
einn valkostur ( skilst mér ) og það er að fara að læra í
Kaupmannahöfn og ég nenni ekki að fara með lestinni 2 tíma á
hverjum degi bara til að syngja, það er að segja ef að ég fæ ekki
útrás á annnan hátt, og kirkjukórar eru sko ekki á hverju strái hér
Hlakka mikið til að hitta vinkonurnar þegar ég kem heim, verð bara
að koma því að hér  Sakna ykkar mikið
Jæja búið í bili er að fara að sofa
Hilsen
Feita Dúfan
»
02.11.2006 09:46:13 / sigga
Arrg ég var búin að skrifa þvílíka færslu
en hún komst ekki inn. Pirrrrrrr!!!!
Jæja það er byrjað að snjóa hér í Danmörkinni. Það er svo
æðislegt veður hér í dag... alger stilla, sól og snjór, gerist ekki
betra en það. Ég ætla pottþétt út í göngutúr þrátt fyrir svaka
kulda, ég er nefnilega svo heppin að eiga nóg af hlýjum útifötum

Já það byrjar alltaf að snjóa þegar ég byrja að spila jölalög
hahaha
Já ég er byrjuð, það róar mig niður, kemur mér í tiltektar stuð
og ég verð að hlusta á jólalög þegar ég er að föndra fyrir
jólin.. og mér finnst jólin bara alveg vera að koma !! Ég er hvort
sem er alltaf ein heima á daginn svo að ég er ekki að pína neinn

Meira að segja búin að kaupa fyrstu jólagjöfina..Vá það er stórt
fyrir mig að byrja svona snemma hahaha ég er nefnilega svona,
alltaf á síðustu stundu með allt mannseskja 
Svona af fjölskyldunni að frétta, þá er bara allt við það sama.
Okkur gengur vel að aðlagast hér, tungumálið er allt að koma og við
erum hægt og rólega að kynnast dönunum í kring um okkur Þeir eru
ekki beint opnasta fólkið þrátt fyrir að vera mjög kurteisir. Svo
að það tekur tíma að kynnast nóg til að geta kíkt í heimsókn 
Ég er búin að kynnast einni mömmunni í bekknum hennar Birgittu,
hún virkar mjög fín svona við fyrstu kynni og þau búa nánast í
næsta húsi sem að er mjög þægilegt 
Við aftur á móti þekkjum mikið af íslendingum hér og erum búin
að skíra Odense "Litlu Vogar" það er nefnilega alveg ótrúlegur
fjöldi af Vogabúum sem að búa hér !! Svo að við höfum það bara mjög
gott 
Mig dreymdi skrítin draum í nótt. Mig dreymdi að það hefðu orðið
mistök og að Dúra amma hefði ekki dáið eins og við héldum!!
Auðvitað var ég algjörlega í skýjunum í draumnum og það var svo
gott að geta talað við hana aftur og knúsað hana ( besta knús í
heimi hún var svo mjúk ) Og eins og þið getið ímyndað ykkur þá
var ég mjög svekkt þegar ég vaknaði og komst að því að þetta var
bara draumur. En það var samt yndislegt að geta knúsað hana þótt að
það væri bara í draumi, betra en ekkert...kannski var hún bara að
heimsækja mig og láta vita af sér.. hver veit !!
Jæja læt þetta gott heita í bili... ég er búin að skrifa þetta
tvisvar núna svo að puttarnir eru orðnir svolítið þreyttir og ég
þarf að fara að læra og ég verð víst að nota þá við það 
Kveð í bili úr frosti, sól og stillu...
Feita Dúfan 
»
29.10.2006 22:33:11 / sigga
Jæja þá eru tengdó farin og húsið hálf tómlegt. En það styttist
sem betur fer í mömmu,pabba og Jón afa svo að þetta reddast. Þau
koma og verða yfir 6 ára afmælið hjá Birgittu og ég get sagt ykkur
að hún er í skýjunum yfir öllum þessum heimsóknum og Guðbjörg
einnig.
Þær hafa það bara mjög gott báðar tvær og eru að fíla það í
botn að vera saman í herbergi aftur Þær eru svo nánar
systur 
Guðbjörg er búin að koma okkur mikið á óvart
undanfarið með því að tala frekar mikla dönsku, orðin sem að
við héldum að væru bara barnamál voru víst bara danska sem að við
skildum ekki En núna er hún farin að tala hana skýrar svo við
föttuðum hin ýmsu orð sem að litla skottið er búin að vera segja í
lengri tíma...úbbs 
En svona erum við bara Við erum farin að ná mállískunni hérna
og þá kom að því að við skildum dætur okkar betur Birgitta
er auðvitað að brillera í dönskunni miða við það sem að kennarinn
hennar segir. Og hún á núna danskar vinkonur og getur léttilega
talað við þær, svo að hún er í raun og veru betri en við Ívar

Jæja ég var að fá bækurnar fyrir fjarnámið svo að núna þarf ég
að keyra allt á fullt í því að læra heima. En mér hefur alltaf
gengið best undir mikilli pressu og þegar allt er á síðustu
stundu.. ég er bara svona redda þessu á síðustu stundu manneskja
En sem betur fer þá gengur það bara ágætlega hjá mér að vera svona.
Hjúkk !!!!
Vá hvað mig hlakkar til jólanna en mig kvíður einnig
gífulega fyrir þeim.
Þetta eru fyrstu jólin síðan að Dúra amma lést, sem að ég næ að
komast í almennilegan jóla fíling..við gerðum nefnilega allt föndur
og svoleiðis saman fyrir jólin í svo mörg ár. Við vorum líka báðar
tvær algjörlega út af kortinu í að skreyta fyrir jólin... það er
vara svo að það sjáist í tréð fyrir skrauti 
En núna þá verðum við á íslandi og ég skreyti ekkert með mínu
skrauti og til að bæta gráu ofan á svart þá getum við orðað
það þannig.. fjölskyldan hans Ívars skreytir nánast ekki neitt að
mínu mati ( munið það samt að ég er pínu MIKIÐ jólabarn svo að það
er ekki það að þau skreyti ekki, en ég get talið kúlurnar á trénu!!
) Og við verðum mjög líklega þar á aðfangadag, ekki það að það sé
neitt ráðið ennþá.
Kannski að tengdó leyfi mér að skreyta svona bara þessi jól
haha
Ég fæ alla vega að baka fyrir jólin, hún lét mig vita af því að
það mætti ég alveg taka að mér, og það geri ég með glöðu
geði því ég elska að baka, hef bakað þó nokka ekstra
skammta síðustu ár fyrir mína nánustu.
Þetta er náttúrulega mjög skrítið fyrir mig því að við Ívar
höfum haldið jólaboð síðastliðin ár, þannig að ég var að sjá um
allt og ég get sagt ykkur það að ég elska það. Svo núna verður mjög
tómlegt hjá mér, því að ég kaupi allar jólagjafirnar hérna úti og
þarf ekki að skreyta og baksturinn tekur ekki langann tíma svo að
það vantar týpíska íslenska jóla stressið Það kemur eflaust
eitthvað í staðin 
Ég er ekki að kvarta en þetta er bara skrítið að hugsa til

Kannski nær maður aftur gamla jóla andanum með því að slappa
pínulítið af, hver veit 
Jæja nenni ekki meiru í bili 
Kveðja úr afmælis stússi og jóla hugleiðingum...
Feita Dúfan 
»
17.10.2006 23:48:30 / sigga
Jæja þá er ég formlegaorðin sérfræðingur í Ikea samsetningum
hahaha Við höfum verið að setja saman svo mikið af hlutum frá Ikea
að það er ekki einu sinni fyndið, en svona er það þegar maður býr
þröngt, eða allavega þrengra en áður 
En að öðru... Birgitta, Ívar og ég hlupum í skólahlaupinu á
föstudaginn síðasta Það er íþróttadagur í öllum skólum hér í dk
daginn fyrir vetrarfríið. Það væri svo sem ekki í frásögu færandi,
nema það að við hlupum heila 5 kílómetra..úff!!! Við komumst svo að
því að 0 og 1 bekkur áttu bara að hlaupa 3 kílómetra en samt
náðum við að vera með þeim fyrstu í bekknum hennar ( held að hún
hafi verið nr.2 eða 3 ) og hún var númer 51 yfir allann skólann
og þá er ég að tala um að það voru krakkar allt upp í 9 bekk
að keppa við hana . Alla vega þá erum við svo stolt af
stelpunni okkar að við erum að springa ( og Ívar er svo stoltur af
mér því að ég hef ekki hlaupið svona langt í mjög langann tíma )
Hún ætlar að verða hlaupagikkur eins og mamma sín, ja hún er alla
vega ekki með íþróttagenin hans pabba síns ( ANTISPORTISTI á
sínum yngri árum, eða alla vega ekki fyrir hefðbundnar íþróttir
)
Mér finnst samt bara best að hún skuli hafa gaman af því að
hreyfa sig, það finnst mér mjög mikilvægt hjá börnum
Já og annað við fórum í klippingu í morgun sem að væri ekkert
til að tala um nema það að Birgitta bað um að láta klippa sig
nokkuð stutt, sem að er mjög nýtt hjá henni þar sem að allt hefur
gengið út á sítt hár hjá henni í nokkur ár En hún vildi fá það
svona millisítt ( niður að hnakka ) og hún fékk það. Sú er líka
ánægð núna...vá!! Og auðvitað þá varð Guðbjörg að vera eins
og systir sín, en það var kannski meira af nauðsyn en nokkru öðru,
Birgitta var nefnilega búin að "snyrta" hárið á henni fyrir stuttu
En Guðbjörg var einnig mjög ánægð með sína klippingu og
sveifluðu þær hárinu til og frá í dag Ég og Ívar erum einnig
mjög ánægð 
Jæja bara tveir dagar þangað til að tengdó koma í heimsókn,
okkur hlakkar svo mikið til. Stelpurnar vita ekkert og þar sem að
þau lenda svo seint þá munu stelpurnar bara hitta þau á
föstudagsmorguninn. Vá hvað mig hlakkar til að sjá svipinn á þeim
þá Get varla beðið 
Við ætlum að reyna að kíkja í Lególand á fimmtudaginn því að það
er að fara að loka fyrir veturinn og maður reynir að nota
árspassann sinn eins mikið og maður getur haha. En okkur finnst
þetta jafn gaman og stelpunum svo að það er ok 
Jæja ætla að fara að glápa á imbann með kallinum mínum, hann er
svo einmanna fyrir framan skjáinn hahaha
Kveðja Feita dúfan 
Get varla beðið þangað til að Jón afi og pabbi og mamma koma í
heimsókn. Okkur er farið að líða eins og það séu komin jól við erum
svo spennt yfir því að fá ættingjana í heimsókn 
P.S. Silla mamma ef að þú lest þetta skilaðu þá kveðju til hans
Jóns afa og það er svo gaman að sjá kommentin frá ykkur
öllum.
Og Eygló..innilega til hamingju með bumbubúan Kíki í kaffi
til þín í des þegar ég kem til landsins 
»
09.10.2006 20:44:36 / sigga
Vá hvað mér finnst mikið af fólki sem að ég þekki eða kannst við
vera að deyja!!
Einn af mínum "stóru bræðrum" er dáinn. Já eins og flestir vita
þá á ég ekki stóran bróðir hvað þá nokkra, en ég er alin upp í
björgunarsveit og þar átti ég þó nokkur "stóru systkyni" sem að mér
þykir ávallt vænt um. Það er því mikið áfall að einhver úr þessum
hóp sé fallinn frá. Hann Bragi var einn af mörgum heimalingum hjá
mömmu og pabba þegar mamma var formaður í Stakk. Þau kölluðu mömmu
og pabba meira að segja Gugga mamma og Biddi pabbi Þess vegna
fór ég að kalla þau stóru systkynin mín. Seinna urðu þetta alveg
frábærir félagar sem að tóku mér eins og ég er og létu sér ekki
skipta að ég var 5-8 árum yngri en þau Ég á mínar bestu
minningar frá þessum tíma. Það var alltaf stutt í húmorinn og
stríðnina hjá Braga og þegar ég hugsa um hann þá man ég alltaf
hvernig hann glotti til mín eins og ég ætti bara að passa mig á því
hverju hann gæti tekið upp á
Jæja Bragi minn ég vona að við munum hittast á ný. Guð fylgji
þér á leið þinni í ljósið. Stakks-partýin verða ekki söm án þín,
það er eitt sem að víst er. Mig langar að láta fylgja þér ljóð sem
að ég samdi og mér finnst viðeigandi núna:
Huggun
Kæri vinur ég sakna þín,
ég vildi að þú kæmist aftur til mín.
En þú ert umvafin ljósi þar,
eins og þú varst reyndar allstaðar.
Sárt er að horfa á eftir þér,
en ég veit að þú munt muna eftir mér.
Því þitt hreina hjarta og bjarta sál,
munu þerra okkar trega tár.
Kæri vinur farðu í friði og megi Guð styrkja dætur þínar, Thelmu
og aðra ástvini og félaga.
En að öðru...
Lífið hér gengur sinn vanagang. Birgittu gengur vel í nýja
skólanum og er búin að eignast nýjar vinkonur. Er að fara í sitt
fyrsta afmæli í bekknum á morgun hjá Maríu vinkonu sinni 
Guðbjörg er farin að babla svo mikið á dönsku en samt bara orð
og orð en svo eru örfáar setningar inn á milli Svaka dugleg.
Mesta vesenið við að setja hana á leikskólann á morgnanna er það að
krakkarnir eru of dugleg að fagna henni. Barnið er víst svona
svakalega vinsæl að það jaðrar við það að vera óþægilegt Hún á
eftir að verða stór stjarna með þessu móti Ekki það að hún
sækist eftir athyglinni, hún vill ekki hafa neinn of mikið ofan í
sér, týpýsk meyja eins og mamma 
Ívari gengur vel í skólanum og er hann alltaf að ná dönskunni
betur og betur. Hann er samt eins og hann á að sér að vera finnst
að hann sé alveg út að aka, en bara svo að þið vitið þá finnst
honum það alltaf en svo brillerar hann Ég reyni að minna hann á
það er svona er kallinn minn ÞRJÓSKUR Vill ekki trúa því

Af mér er allt við það sama bíð bara eftir bókunum frá Íslandi
svo að ég geti byrjað í fjarnáminu. Ég er búin að tapa mér eins og
kallinn minn segir alltaf ég er búin að missa 5 kíló á tveim
vikum. Og viljið þið vita hverning....ég byrjaði að borða oftar og
drekk aðeins meira vatn Já og mætti einu sinni í ræktina En
núna er ég að fara á fullt í hana, en bara eftir að ég og Ívar
klárum að mála í gömlu íbúðinni. Verð ekkert smá fegin þegar það er
búið 
Svo erum við að fara að taka á móti tengda mömmu og tengda
pabba núna 19 okt og svo koma pabbi, mamma og Jón afi
þann 10 nóv og verða þau yfir afmælið hennar Birgittu Stelpurnar
vita ekkert því að þær myndu deyja úr spenningi ef að þær vissu
þetta 
Okkur hlakkar svo til að hitta fjölskylduna að við erum sjálf að
farast úr spenningi 
Vetrarfríið er í næstu viku og mig hlakkar til..nóg að gera

Settum stelpurnar saman í herbergi aftur, bæði vegna allra
gestanna og einnig því að þær virðast vilja vera saman Svona
eiga góðar systur að vera Bara stolt mamma Nei þær eru
orðnar svo vanar að vera saman að þeim finnst það best þannig. Það
hentar okkur auðvitað mjög vel því að þá fáum við auka herbergi,
þangað til að þær biðja um annað 
Jæja hætt í bili..
Hugsið vel um hvort annað, lífið er bara allt of stutt til að
sóa því í vitleysu.
Love you all....
Feita Dúfan (sem að er mikið að hugsa um lífið og tilveruna og
því mjög meir)
»
02.10.2006 07:22:37 / sigga
Já það er búið að vera brjálað að gera undanfarið.
Birgitta er byrjuð í nýja skólanum og gengur það alveg
frábærlega. Hún eignaðist strax vinkonur og allir krakkarnir tóku
henni mjög vel. Kennnarinn er frábær og fólkið í frístundaskólanum
einnig. Bara allt "brilljant" hjá litlu dömunni. Henni líður einnig
mikið betur og er farin að haga sér eins og henni einni er
lagið...hún er svoddan fiðrildi, það er ekki hægt að breyta því, og
ég vil það heldur ekki 
Já núna er ég orðin Versló gella, verð að fá mér brunkuklúta og
svoleiðis nauðsynjar ef marka má það sem að ég hef heyrt hahaha
nei bara smá skot. Ég er byrjuð í fjarnámi við Versló, það tók svo
langann tíma að fá svar hvort að það næðist að troða mér í bekk hér
í VCU að ég gafst upp á að bíða. Fékk svo bréf fyrir helgi um að ég
kæmist inn. Verð að svekkja þá með því að ég valdi annann 
Ívar bauð mér út um helgina. Voða sætur. Hann reddaði Atla og
Hjördísi til að passa litlu skotturnar og fá þau þúsund þakkir
fyrir, stelpurnar dýrka að fá að hitta þau.
Við byrjuðum á því að fara í bíó á myndina "Clik" römbuðum
reyndar inn í vitlausan sal og byrjuðum að horfa á einhverja danska
mynd haha bara asnalegt að þurfa að standa upp og labba burt

Þegar myndin var búin, sem að "bæ þe vei" var mjög góð og
fær mann til að hugsa, þá röltum við um bæinn og svo bauð hann
mér á fínan kínverskann stað og svo fórum við á djammið. Skemmtum
okkur vel, en við erum ekki að ná því að við erum bara gjörsamlega
búin á því kl 3. Heima þá djammaði maður alveg eins og brjálæðingur
til 6-7 á morgnanna ef að maður komst upp með það, og allur næsti
dagur var líka ónýtur. Hérna þá vorum við komin heim kl 3 og vorum
við bara hress og kát. Sváfum reyndar til hádegis en við höfum
heldur ekki fengið mörg tækifæri til að sofa út svo að það var
augljóst að við þurftum á því að halda, allir fluttningarnir og
stressið leið úr okkur og við vöknuðum endurnærð. Svo að ég verð að
segja enn og aftur TAKK Atli og Hjördís þið eruð æði 
Já núna sit ég hér heima með Guðbjörgu sem að er enn veik en
ekki eins mikið og áður. Hún er búin að vera með einhverja
vírussýkingu alla síðustu viku og er enn með ljótann hósta svo að
ég held henni heima en sem komið er.
Ívar er í skólaferðalagi og kemur ekki heim fyrr en á morgun.
Veit ekki afhverju en ég er alltaf með hnút í maganum þegar hann
fer eitthvað. Kannski eru það afleiðingar þess þegar hann lenti í
bílslysinu á reykjanesbrautinni fyrir mörgum árum. Það er það
erfiðasta sem að ég hef upplifað, að horfa upp á manninn sinn
liggja inni á gjörgæslu illa slasaðann. Gleymi því aldrei. Mundi
ekki einu sinni númerið hjá afa og ömmu ég var í svo miklu panikki
þegar ég frétti hvað hefði komið fyrir. Ojjj vona að við þurfum
ekki að upplifa þetta aftur.( og nei hann var ekki að keyra fyrir
þá sem að eru að velta því fyrir sér ) Nei ég veit ekki afhverju ég
er alltaf svona en það verður víst bara að hafa það, ekki get ég
stoppað manninn í því að skemmta sér 
Já svo núna sit ég ein hér heima með litlu prinsessuna og náði
að hafa smá tíma fyrir mig til að blogga Veit að ég er ekki sú
duglegasta við það en ég reyni að bæta mig. Kannski að þetta skáni
núna þegar ég er í tölvunni alla daga.
Ívar hengdi upp málverkin okkar í gær...o hvað það er gott að
hafa myndir að heiman uppi á vegg.. það eru tvær af Þingvöllum og
ein af keilir dásamlegt og núna er stofan svo kósý að mig langar
ekki úr henni 
Jæja læt þetta gott heita í bili, hef ekki frá meiru að segja
sem að ég man eftir svo að ég er hætt 
Kveðja frá Odense....
Feita dúfan 
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|